Viðskipti Mánudagur 15.11.2010 - 11:22 - Ummæli ()

Fullvinnsla allra sjávarafurða hérlendis gæti skapað um 1500 störf

Fullvinna þarf allan fisk á Íslandi

Ekki er fráleitt að ætla að yrðu allur afli íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja fullunninn hér á landi gætu skapast um 1500 störf í viðbót við þau sem fyrir eru að mati Elínar Bjargar Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda.

Þar miðar Elín við þau 37 þúsund tonn af fiski sem fluttur var óunninn úr landi á síðasta ári en henni telst til að yrði þessi viðbót unnin hér á landi fjölgaði störfum um 500 hið minnsta auk eins til tveggja afleiddra starfa fyrir hvert og eitt starf. Sagði Elín frá þessu á aðalfundi samtakanna sem fram fór um helgina en Morgunblaðið greinir frá.

Þá sagði Elín brýna þ þörf að jafna samkeppnisstöðu í sjávarútveginum. Núverandi kerfi ýti undir samkeppnislega mismunun og vísaði hún til þess að þau fyrirtæki sem aðeins starfræki vinnslu kaupi sitt hráefni á markaði og greiði þannig 30 prósent hærra verð en þau fyrirtæki sem einnig reka útgerð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is