Viðskipti Mánudagur 15.11.2010 - 06:44 - Ummæli ()

Höfundur ævisögu Jónínu: Tilhæfulaust að Björn og Jón Ásgeir hafi fundað

Frétt vefmiðilsins Visis um að þeir Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, og Jón Ásgeir Jóhannesson hafi hist með leynd árið 2005 til að ræða Baugsmálið er tilhæfulaus. Vísir fullyrti að þetta stæði í ævisögu Jónínu Benediktsdóttir, en í yfirlýsingu sem höfundur bókarinnar, Sölvi Tryggvason, sendi frá sér í gærkvöldi segir að svo sé ekki.

Frétt Vísis hefur nú verið leiðrétt og segir nú að Björn hafi hitt aðstoðarmann Jóns Ásgeirs. Upphaflega fréttin varð Gunnari Smára Egilssyni, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins, tilefni til langrar ritsmíðar sem Eyjan sagði frá í gær.

Á vefsíðu sinni segir Björn Bjarnason að hann hafi aldrei hitt Jón Ásgeir. Hann segir að skrif Gunnars Smára Egilssonar séu ósannindi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is