Sérstakur saksóknari: Fimm mismunandi fjárfestingar til rannsóknar

Ekki kannski svo ýkja Smart banking eftir allt saman?
Embætti sérstaks saksóknara hefur farið í nokkrar húsleitir í dag í tengslum við rannsóknir embættisins á lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf þeirra.
Rannsakar embættið sérstaklega fimm lánveitingar samkvæmt tilkynningu embættisins. Þær eru:
- Lánveitingar til félagsins Stím hf sem tengdust viðskiptum með hlutabréf í Glitni og FL Group.
- Lánveitingar til félagsins FS-38 ehf til kaupa á Aurum Holding Ltd. af Fons hf.
- Lánveitingar til Stoða hf (síðar Landic Properties), Baugs hf og 101 Capital ehf í tengslum við kaup á danska fasteignafélaginu Keops A/S.
- Kaup fagfjárfestasjóðs GLB FX, sem var í vörslu Glitnis, á skuldabréfi af Saga Capital en bréfið var útgefið af Stím ehf.
- Kaup Glitnis á hlutabréfum í Tryggingamiðstöðinni.
Grunur er um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans, brot á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um ársreikninga og lögum um bókhald. Um er að tefla verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns og fjölmörgum tilvikum.
Var málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara annarsvegar með kærum frá Fjármálaeftirlitinu og hinsvegar með tilkynningu frá skilanefnd Glitnis á þessu ári en málin hafa verið til meðferðar síðan.
Enn standa yfirheyrslur yfir um munu gera í allan dag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is