Rannsóknin á Glitni: Líklegt að næst verði stórlaxarnir sóttir til yfirheyrslu
Nokkrir stórlaxar viðskiptalífsins fyrir hrun mega að líkindum eiga von á því að verða fluttir til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í tengslum við húsleitinar sem framkvæmdar voru í gær. Um er að ræða menn í svokallaðri sjömenningaklíku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem slitastjórn Glitnis hefur stefnt fyrir rétt í New York. Þeir koma við sögu í flestum málunum sem til rannsóknar voru í gær.
Fréttablaðið segir í dag að enginn sjömenninganna hafi verið handtekinn eða yfirheyrður í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins hyggist starfsmenn saksóknara undirbyggja rannsókn sína betur með yfirheyrslum og gagnayfirlegu áður en stórlaxarnir verða kallaðir fyrir.
Lárus Welding ætlar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að koma frá London í yfirheyrslu á morgun. Jón Ásgeir sagði við Fréttablaðið í gær að hvorki hann né Ingibjörg Pálmadóttir kona hans hefðu verið boðuð í skýrslutöku.
Fram kemur í frétt blaðsins að meðal staða sem leitað var á í gær sé heimili Lárusar í Blönduhlíð – þar sem ekki var lagt hald á neitt að sögn Ragnars H. Hall, lögmanns hans – skrifstofa Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á 101 Hóteli, skrifstofa Pálma Haraldssonar í Reykjavík og skrifstofur Saga fjárfestingarbanka í Reykjavík og á Akureyri. Þá gerði lögreglan á Hvolsvelli eina húsleit vegna málsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is