Sparnaður? Nýr sendiráðsbústaður í millahverfi í London kostaði 855 milljónir.
Nýr sendiráðsbústaður Íslendinga í London er á einum besta og flottasta stað borgarinnar, nánar tiltekið við götuna Drayton Gardens, í hinu ríkmannlega Chelsea- og Kensington-hverfi. Sendiráðsbústaðurinn kostaði 835 milljónir króna og er alls um 312 fermetrar að stærð. Þrátt fyrir þennan háa verðmiða er litið svo á í utanríkisráðuneytinu að verið sé að afla peninga í ríkissjóð.
Blaðið segir að í árslok 2008 hafi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tekið þá ákvörðun að selja stóra og óhagkvæma sendiráðsbústaði og kaupa aðra minni. Til að fjármagna kaupin á nýjum sendiráðsbústað við Drayton Gardens í London hafi gamli sendiráðsbústaðurinn verið seldur fyrir 1.700 milljónir króna. Sá bústaður var við Park Street og var 638 fermetrar að stærð. Hófst í kjölfarið leit að minna og hagstæðara húsnæði sem fannst að lokum við hina ofurfínu götu Drayton Gardens. Mismunurinn, um 865 milljónir króna, rennur í ríkissjóð „og hljómar vissulega vel á krepputímum,“ segir DV.
Blaðið bætir hins vegar við að umtalsverð upphæð eigi eftir að dragast frá þessum afgangi í formi flutnings- og endurbótakostnaðar sem nemi tugum milljóna króna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is