Árni Johnsen: Stjórnvöld vilja gera Ísland að litlu þorpi í Tyrklandi

Árni fer mikinn um ríkisstjórn Íslands í pistli
„Hvað sem segja má um aðra flokka, eins og til að mynda Sjálfstæðisflokkinn, þá hefur það sýnt sig að þótt hann geri mistök, mannleg eða af hugsunarleysi, þá borgar sig ekki að refsa honum, því hann hefur þor til þess að snúa vörn í sókn hvort sem það heyrir til óvinsælda eða vinsælda.“
Svo skrifar Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í afar hörðum pistli í Morgunblað dagsins þar sem þingmaðurinn segir stjórnvöld, þrátt fyrir vonir Árna um að fyrsta ómengaða vinstristjórnin gerði eitthvað af viti, ekkert hafa fram að færa nema doða, hræðsluáróður og ekki síst hundsað víðtæka sátt um fiskveiðistjórnun landsins. Þá stefni ríkisstjórnin að því að gera Ísland að litlu þorpi í Tyrklandi með aðilarviðræðum sínum við Evrópusambandið.
Nær 30 manna hópur allra hagsmunaaðila og sérfræðinga vann mánuðum saman að sátt í fiskveiðistjórnuninni. Sáttin náðist með svokallaðri samkomulagsleið þar sem m.a. var sátt um að sníða af ýmsa hnökra og vankanta á kerfinu en höggva það ekki að rótum því það myndi þýða hrun í greininni og stórkostlega óvissu í atvinnugrein sem skapar 60% af þjóðartekjunum. Menn önduðu léttar því óvissan er verst, en sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnin hrópuðu þá : »Allt í plati, allt í plati, nú standa allir á gati.
Þegar búið er að ná eins víðtækri sátt um fiskveiðistjórnunina og hægt er í grein sem aldrei verður full sátt um, þá getur ríkisstjórn ekki verið að blanda sér inn í það með hótunum um 10% skerðingu nú með löggjöf og um leið hótunum um 20% næst og 30% þarnæst, því þá verður allt farið til fjandans, ekkert öryggi, engin viðmiðun í rekstri, öll markaðsmál í upplausn, allir samningar um hæstu verð á bestu mörkuðunum, ekkert sem segir yfirleitt að sé að vænta einhvers framhaldslífs í metnaðarfullum og hagkvæmum höfuðatvinnuvegi Íslendinga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is