Mánudagur 29.11.2010 - 08:00
- Ummæli
()
WILLIE NELSON (77): Handtekinn með 170 af kannabisi
Kántrí söngvarinn Willie Nelson var handtekinn síðasta föstudagsmorgun fyrir að hafa kannabis í fórum sínum.
Willie var á leiðinni yfir fylkismörk í Texas þegar lögreglan stöðvaði bílinn sem hann ferðaðist með ásamt hljómsveitarmeðlimum sínum. Í bílnum voru þeir með 170 grömm af ‘grasi’.
Farið var með Willie í fangelsi þar sem hann var sektaður um tæplega 300.000 krónur.
Kántríkappinn knái hefur aldrei farið leynt með aðdáun sína á kannabisi og segist hafa reykt það árum saman. Þar af leiðandi er þetta ekki í fyrsta sinn sem hann kemst í kast við lögin vegna þessa og því nokkuð vanur maður enda 77 ára gamall.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
