Viðskipti Þriðjudagur 30.11.2010 - 14:07 - Ummæli ()

Ný væntingavísitala sýnir jákvæðara viðhorf landsmanna

Kannski jólavertíðin glæði huga landsmanna til efnahagsmálanna

Svo virðist sem létt hafi talsvert á fólkinu í landinu milli mánaða ef marka má nýja Væntingarvísitölu Gallups en vísitalan hækkar um 19 stig frá síðasta mánuði. Er vísitalan nú 50,6 stig en í hundrað stigum eru jafn margir bjartsýnir á horfurnar framundan og eru svartsýnir.

Telur morgunkorn greiningar Íslandsbanka að þessi þróun eigi ekki að koma á óvart enda hafi ólgan verið afar sýnileg í október vegna fjárhagslegrar stöðu heimilanna og yfirvofandi niðurskurðar í opinberum rekstri.

Allar undirvísitölur Væningarvísitölunnar hækkuðu í nóvember frá fyrri mánuði en því var öfugt farið á milli september og október. Þessi hækkun vegur þó ekki upp þá lækkun sem átti sér stað síðast og eiga undirvísitölunnar því þó nokkuð í land með að ná sömu gildum og í september. Þó er ljóst að þetta bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags- og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði eru meiri nú en fyrir mánuði síðan.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is