Miðvikudagur 01.12.2010 - 16:32 - Ummæli ()

Rúmlega 60 vistmenn í Breiðavík sótt um bætur. Frestur að renna út

Fórnarlömb illrar meðferðar í Breiðavík geta nú sótt sér bætur

Þegar hafa 60 einstaklingar svo vitað sé sótt sérstaklega um bætur þær er ríkið hyggst greiða öllum þeim er urðu fyrir illri meðferð í vist á Breiðavíkurheimilinu á árum áður. Umsóknarfrestur um bótagreiðslur rennur út í lok janúar.

Fréttablaðið segir frá því að 60 vistmenn hafi leitað aðstoðar Guðrúnar Ögmundsdóttur sem er sérstakur tengiliður vegna vistheimila ríkisins en stjórnvöld ákváðu í vor að greiða samtals 235 milljónir króna til fórnarlamba illrar meðferðar í Breiðavík.

Eru sanngirnisbætur hvers og eins misjafnar en verði þær hærri en tvær milljónir á mann er heimilt að greiða þær út yfir lengri tíma.. Mun sýslumaðurinn á Siglufirði ákvarða bætur hvers og eins fyrir hönd ríkisins en vistmenn geta áfrýjað málum sínum til sérstakrar áfrýjunarnefndar ef svo ber undir.

158 einstaklingar dvöldu í heildina á heimilinu í Breiðavík þegar það var starfrækt milli 1952 og 1979. Talið er að 35 þeirra séu látnir og ólíklegt er talið að allir eftirlifendur kæri sig um að ýfa upp gömul sár með umsókn um sanngirnisbæturnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is