Fimmtudagur 02.12.2010 - 21:23
- Ummæli
()
JOHNNY DEPP: Hjónaband er frá hjarta til hjarta, maður þarf ekki pappíra

Hjartaknúsarinn Johnny Depp segist ekki þurfa á neinum pappírum að halda til að vera giftur.
Leikarinn hefur verið með frönsku söngkonunni Vanessu Paradis í tólf ár og saman eiga þau tvö börn; Lily Rose sem er ellefu ára og Jack sem er átta ára.
„Mér hefur aldrei fundist ég þurfa á pappírum að halda til að sanna það fyrir mér að ég sé giftur. Hjónaband er eitthvað sem gerist frá sál til sálar, hjarta til hjarta. Þú þarft ekki einhvern utanaðkomandi aðila til að segja þér að þú sért giftur…
„Ef Vanessa myndi vilja þetta þá væri það allt í lagi en í sannleika sagt þá langar mig eiginlega ekki til að eyðileggja eftirnafnið hennar. Það er svo flott“.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is