Tilfinning lögreglu að framleiðsla og sala á landa sé að aukast
Margt bendir til að framleiðsla heimabruggs sé að færast í aukana, að því er segir í Morgunblaðinu í dag. Haft er eftir Sigurbirni Víði Eggertssyni, aðstoðaryfirlögregluþjón höfuðborgasvæðisins að þetta sé tilfinning lögreglu.
Í gær var handtekinn bruggari á heimili sínu með 400 lítra af landa, auk 850 lítra af gambra, sem er brugg sem eftir á að eima. Hann játaði að hafa stundað landasölu um nokkra mánaða skeið. Þetta var í fyrsta skipti sem viðkomandi komst í kast við lögin.
Að sögn lögreglu er algengt smásöluverð landa á bilinu 2000-2500 kr. per lítri, á meðan lítersflaska af vodka úr ÁTVR kostar tæplega 7000 kr.
Miðað við þessar tölur er verðmæti þeirra 400 lítra af eimuðum landa sem náðist í gær á bilinu 800 þúsund til milljón.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
