Jóhanna: Samfylkingin gekk of mikið inn í venjur Sjálfstæðis- flokksins
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir flokkinn verða að biðja þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem gerð voru í stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta kom fram í ræðu Jóhönnu á flokksstjórnarfundi Samfylkinginnar sem fór fram á hótel Loftleiðum í dag og greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins.
Jóhanna segir Samfylkinguna verða að axla ábyrgð á fortíðinni og viðurkenna að hún var ekki fórnarlamb heldur gerandi. Samfylkining hefði getað gert betur. Samfylkingin hafi ekki verið fórnarlamb óheillaþróunar á þessu tímabili.
Jóhanna segir Samfylkinguna axla ábyrgð sína með heiðarlegu uppgjöri við fortíðina, uppstokkun á starfsháttum og áherslum og kraftmikul endurreisnarstarfi á vettvangi flokks og samfélags. Jóhanna sagði Samfylkinguna ekki hafa nýtt tækifærin og gengið of mikið inn í venjur Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði Samfylkinguna hafa staðið að margvíslegum breytingum á vinnubrögðum innan stjórnarráðsins og skaut föstum skotum þegar hún rifjaði upp breytingar á lögum um Seðlabankann.
Samfylkingin viðurkennir ábyrgð sína
Í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar, sem kynnt var í dag, segir að ábyrgð flokksins hafi m.a. falist í:
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
