Laugardagur 04.12.2010 - 13:09 - Ummæli ()

SAMSKIPTI: Sendu henni bréf og sláðu henni gullhamra oft á dag

Til eru einföld ráð sem gera líf karlmannsins auðveldara í samskiptum við konur. Að rækta garðinn sinn er gamalt orðatiltæki og ef karlmaður ræktar sambandið sem hann er í til jafns við konuna, mun hann uppskera sem hann sáir.

Hér eru sáraeinföld heilræði til karlmanna um hvernig þeir geta gert sambandið sitt betra.

Segðu henni það sem hana langar til að heyra: Þegar þið liggið saman í rúminu þá langar hana að heyra sitt lítið af hverju og eitt af því er einfaldlega „Mig langar til að þér líði vel“. Þetta hjálpar henni að slaka á og treysta þér.

Eyddu tíma með giftu vinum þínum: Eitt ráð til þeirra einhleypu - Ef þú ert einhleypur þá er snjallræði að hanga svolítið með vinum þínum sem eru giftir og í samböndum. Þar sem þeir eiga konur, sem eiga vinkonur, þá umgangast þeir fleiri kvenmenn en einhleypu vinir þínir og þar með eiga þeir séns á að kynna þig fyrir sætum stelpum.

Sláðu henni gullhamra, 5 sinnum á dag: Hrósaðu henni að minnsta kosti fimm sinnum á dag. Þetta lætur henni líða sérlega vel. Henni finnst hún sérstök í þínum huga og hún finnur til sterkari nándar og því meiri sem nándin er því meira langar hana til að sofa hjá þér.

Keyptu þér rakspíra sem henni líkar við: Ef þú átt ekki rakspíra sem henni finnst góður þá skaltu skreppa með henni í búð og þið hjálpist að við að finna þann rétta. Það má líta á þetta sem einskonar forleik.

Leiddu hana: Ef þú leiðir konuna þína, eða kærustuna, þá ertu að segja heiminum að þið séuð saman og að þú sért stoltur af því. Þetta á að öllum líkindum eftir að falla henni vel í geð.

Kysstu hana bara: Næst þegar þú kyssir hana þá skaltu ekki gera það sem einhverskonar upphaf að kynlífi. Konum finnst oft gaman að kyssast bara án þess að það eigi að leiða til einhvers annars. Konur virðast hinvegar nota kossa til að vega og meta stöðu sambandsins og hvort þú sért raunverulega skuldbundinn henni.

Skrifaðu henni bréf: Ekki tölvupóst heldur alvöru bréf. Segðu henni hvað þér finnst vænt um hana, hvað þér finnst gaman að vera með henni og hvernig þig hlakki til að eiga með henni framtíð. Settu svo bréfið í póst.

Ekki gleyma að senda sms: Þó að þið hafið verið saman í nokkur ár skaltu ekki gleyma að senda henni sæt sms annað slagið. Skilaboðin þurfa ekki að vera flókin eða löng, bara: Mér finnst þú æðisleg, eða upprifjun á einhverju góðu ykkar á milli. Þetta er lítil fyrirhöfn en kryddar tilveru ykkar beggja mikið.

Listinn er fenginn að láni frá MensHealth

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is