Viðskipti Laugardagur 04.12.2010 - 12:39 - Ummæli ()

WikiLeaks: Bjarni Ben taldi Davíð Oddsson ógna pólitískri framtíð sinni

Bandarískir embættismenn sögðust hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bjarni Benediktsson teldi Davíð Oddsson ógna pólitískri framtíð sinni og að Davíð hafi talað gáleysislega í kringum hrunið.

Bjarni Benediktsson taldi Davíð Oddsson ógna frama hans innan Sjálfstæðisflokksins og vera stóra hindrun í vegi þess að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er mat embættismanna í bandaríska sendiráðinu og kemur fram í skýrslu bandaríska sendiráðsins í Reykjavík til utanríkisráðuneytisins í Washington, sem lekið var til WikiLeaks.

Sagt var frá skýrslunni í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hún er dagsett 11. október 2008 og er merkt leyniskjal sem fjallaði um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir bankahrunið. Þar segir að brestir séu komnir í stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Þá segir að svo virðist sem Geir H. Haarde og Davíð Oddsson fái mestu útreiðina í innlendum og erlendum fjölmiðlum og hjá álitsgjöfum.

Í skýrslu bandaríska sendiráðsins segir ennfremur að Davíð hafi komið fram með margar illa ígrundaðar yfirlýsingar í fjölmiðlum skömmu eftir hrun og að margir telji að sært stolt Davíðs hafi átt þátt í því að Íslendingar leituðu ekki fyrr á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá segir að Geir Haarde hafi átt í miklum vandræðum með að skipta um yfirstjórn í Seðlabankanum. Í raun hafi Geir misst af stóru tækifæri til að auka vinsældir sínar með því að skipta ekki um seðlabankastjóra.

Þá segir að staða Davíðs innan Sjálfstæðisflokksins hafi versnað mikið eftir hrun, sérstaklega í ljósi þess að ungir sjálfstæðisþingmenn væru margir hverjir jákvæðir í garð þess að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu, en Davíð sé eindreginn andstæðingur þess. Þá segjast embættismenn í sendiráðinu bandaríska hafa sterkar heimildir fyrir því að Bjarni Benediktsson, þá þingmaður og núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, líti á Davíð Oddsson sem ógn við stöðu sína í flokknum og möguleika Íslands á að ganga í Evrópusambandið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is