Árni Matt: Bar ekki ábyrgð á bönkunum. Gerðum rétt gagnvart Icesave

Árni Mathiesen segir nýjan Icesave-samning hagkvæmari fyrir ríkissjóð en það hefði kostað að flytja Icesave-reikningana yfir í breskt dótturfélag fyrir bankahrun.
Árni Mathiesen segist ekki hafa borið stjórnskipulega ábyrgð á eftirliti með bankakerfinu enda þótt hann hafi verið fjármálaráðherrar frá 2005 og fram yfir bankahrun haustið 2008. Þá segist hann sannfærður um að ef íslensk stjórnvöld hefðu náð að koma Icesave-reikningum Landsbankans yfir í bresk dótturfélög, hefði það kostað ríkissjóð meira en þeir Icesave-samningar sem nú eru í burðarliðunum.
Í viðtali í Kastljósinu í kvöld sagði Árni: „Samkvæmt verkaskiptingu stjórnarráðsins hafði fjármálaráðuneytið ekki það hlutverk að hafa eftirlit með bönkunum eða því sem þar var að gerast eða að hafa frumkvæði að gera þar einhverjar aðgerðir.“
Aðspurður hvers vegna hann hefði ávallt verið einn örfárra lykilráðherra á fundum um efnahagsástandið sagði Árni það hafa verið til að hann væri „upplýstur um það sem þar er að gerast.“ Þó sagðist hann vissulega bera pólitíska ábyrgð á því ástandi sem hafði skapast.
„Við látum það gerast að bankakerfið verður hér gríðarlega stórt. Það er út af fyrir sig umdeilt. Við mátum aldrei hver áhættan var að hafa svona stórt bankakerfi, það hefðum við átt að gera miklu fyrr,“ sagði hann.
„Ég bar ekki ábyrgð á því að hafa eftirlit með bönkunum eða að bregðast við þeirri stöðu, þegar sú staða reyndist vera önnur en hún var,“ sagði Árni og minnti á að stjórnvöld hefðu verið blekkt um stöðu bankakerfisins.
Icesave „ódýrara“ í dag
Um ástæðu þess að Icesave-innlánsreikningum Landsbankans var ekki komið í breskt dótturfyrirtæki sagði Árni það „spurning hversu langt ríkisvaldið getur hlutast til um málefni einstakra einkafyrirtækja.“
Hann tók hinsvegar fram að það hafi verið reynt að semja við Breta um að koma reikningunum í breskt dótturfélag, en Bretar hafi verið fastir fyrir og krafist hárra ábyrgða af hálfu Íslands.
„Það var aldrei nokkurn tímann þannig að við hefðum getað flutt þessar skuldbindingar til Bretlands án þess að við hefðum þurft að taka á okkur skuldbindingar. Og miðað við þær tölur, sem maður heyrir núna, í nýjustu Icesave-samningum, þá gæti ég best trúað að það hefði verið hærri upphæð en það sem við þurfum að borga út núna. Þeir hefðu aldrei tekið við fleiri hundruð milljarða skuldbindingum frá okkur án þess að við þyrftum að borga. Af hverju gerðu þeir þá ekki?“ sagði Árni.
Landsbankinn fallinn snemma 2008 eða fyrr
Árni sagði jafnframt að hann sæi það núna að Landsbankinn hafi verið í raun fallinn snemma árs 2008 eða jafnvel löngu fyrr. Hann sagði það hafa verið mistök að fara inní Glitni helgina fyrir bankahrun, það sjái hann nú þegar hann hefur heildarmyndina eftir á.
„Staða bankanna reyndist vera önnur en menn voru að segja okkur frá,“ sagði hann og sagði að stjórnvöld hefðu ítrekað fengið rangar upplýsingar um stöðuna.
„Menn höfðu oftrú á þessu nýja fjármálakerfi. Menn höfðu oftrú á þessum nýju tækjum og tólum sem verið var að nota,“ sagði hann.
„Ég hef velt því fyrir mér að hann (Landsbankinn) hafi í raun verið löngu fallinn. Þ.e. snemma 2008 þegar fjárfestingarfélögin voru að falla, sem Landsbankinn fjármagnaði. Núna sýnist mér á fréttum að Landsbankinn gæti hafa verið fallinn löngu fyrr.“
Árni var spurður um hina dramatísku helgi í byrjun október 2008, eða daginn fyrir bankahrun, en þar sagði hann nánast alla sem komu á fund ríkisstjórnarinnar í ráðherrabústaðnum hafa haldið blekkingum sínum áfram.
„Já, ég upplifði það þannig. Kannski var það versta sjálfsblekkingin, þeir héldu að þeir myndu standa þetta allt saman af sér,“ sagði Árni og nefndi sérstaklega stjórnendur Kaupþings og Björgólf Thor Björgófsson, fyrir hönd Landsbankans.
Aðspurður hvort þeir hefðu þá logið að stjórnvöldum sagði hann:
„Allavega var ekki innistæða fyrir því sem menn voru að segja á þessum tíma.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is