Viðskipti Mánudagur 06.12.2010 - 14:47 - Ummæli ()

Ríkisendurskoðun: Gerir verulegar athugasemdir við fjármálastjórn ríkisins

Ríkið ekki barnanna best í fjármálum sínum

Ríkisendurskoðun gerir verulegar athugasemdir við reikningsskil og fjármálastjórn íslenska ríkisins í nýrri skýrslu sinni. Setur stofnunin meðal annars spurningarmerki við fjölmargt sem ríkið hefur gert undanfarin misseri og þar á meðal undrast Ríkisendurskoðun hvaða heimildir ríkið hafði til að koma Sjóvá til bjargar með stóru fjárframlagi.

Er Ríkisendurskoðun að yfirfara ríkisreikninginn fyrir árið 2009 og kemst að því að þar er pottur brotinn. Ýmislegt er gagnrýnt sem miður hefur farið og meðal þess er:

  • Gagnrýnt að ekki skuli í ríkisreikningi getið um verulegar fjárhagslegar skuldbindingar sem ríkissjóður tók á sig á síðasta ári vegna yfirtöku banka á innstæðum í föllnum fjármálafyrirtækjum.
  • Alvarlegar athugasemdir gerðar við þá ákvörðun landbúnaðarráðuneytisins árið 2005 að verja fé sem fékkst við sölu á Lánasjóði landbúnaðarins, rúmlega 214 milljónum króna, til kaupa á bankabréfum hjá Kaupþingi. Við hrun bankans árið 2008 voru bréfin skilgreind sem almennar viðskiptakröfur og benda líkur til þess að féð sé nú að verulegu leyti glatað. Að mati Ríkisendurskoðunar er brýnt að settar verði skýrar og samræmdar reglur um eignaumsýslu ríkissjóðs.
  • Ríkisendurskoðun telur ekki ljóst við hvaða lagaheimild fjármálaráðherra studdist þegar ákvörðun um framlag til handa tryggingafélaginu Sjóvá var tekin. Að mati stofnunarinnar er tímabært að endurskoða þann lagagrunn sem þátttaka ríkissjóðs í endurskipulagningu fjármálafyrirtækja hefur hingað til byggst á.
  • Tilmæli ríkisstjórarinnar til ráðuneyta og stofnana að þau lækkuðu laun umfram 400 þúsund krónur á mánuði voru hundsuð af fjölmörgum stofnunum.
  • Fram kemur að um fimmtungur tekna ríkisins af virðisaukaskatti árið 2009 hafi byggst á áætlunum sem gerðar eru ef framteljandi skilar ekki skýrslu. Slíkar áætlanir eiga m.a. að hvetja framteljendur til að standa skil á skýrslum. Að mati Ríkisendurskoðunar er ljóst að þær hafa einungis takmörkuð áhrif að þessu leyti. Huga þarf að öðrum úrræðum til að bæta skilin.

Ýmsar aðrar athugasemdir eru gerðar í skýrslunni sem sjá má í heild hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is