Mánudagur 06.12.2010 - 08:00
- Ummæli
()
VICTORIA BECKHAM (36): Langar að klæða Tildu Swinton og Angelinu Jolie
Victoria Beckham segir að sig langi til að klæða Angelinu Jolie upp í eigin hönnun.
Fyrrum kryddpían sem kölluð var ‘fína kryddið’ segist raunar mjög ánægð þegar konur klæðast hönnun hennar en hana langar sérstaklega mikið til að sjá Angelinu Jolie í fötum frá sér.
Þegar blaðakona breska Hello spurði frú Beckham hvaða stjörnur hún myndi helst vilja sjá í fötum frá sér nefndi hún þó ekki Angelinu fyrst heldur Tildu Swinton sem hún segist hafa þráhyggju fyrir en í öðru sæti var Angelina.
Þar á eftir komu Kate Bosworth og Michelle Obama.
„Þær myndu allar vera flottar í kjólunum mínum. Ég er reyndar alltaf glöð þegar ég sé konur í fötum frá mér. Þær þurfa ekkert að vera frægar, mér finnst þetta ávallt mikið hrós.“
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is