Brynjar Níelsson segir engan tilgang með kæru
Brynjar Níelsson lögfræðingur segir engan tilgang í því fyrir Gunnar Þorsteinsson að kæra þær konur sem hafa borið á hann sakir um kynferðislega áreitni.
Brynjar segir engin góð úrræði séu fyrir Gunnar og hver sem er geti lent í að vera borinn sökum og málið eigi rætur að rekja til deilna innan Krossins.
Brynjar segir að konurnar séu „að lýsa upplifun sinni á löngu liðnum atburðum, sem verða ekki upplýstir með góðu móti í dag.“ Brynjar segir að þó að sumar ásakananna, þó sannar væru, séu ekki endilega refsiverðar. “
„Lýsingar benda ekki til þess að þetta séu mjög alvarleg brot. Það fer vissulega eftir aðstæðum, en almennt séð teljast þetta til vægustu gerðar kynferðisbrota ef þau teljast það á annað borð,“ segir Brynjar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
