Viðskipti Þriðjudagur 07.12.2010 - 15:54 - Ummæli ()

Engar eignir í þrotabúi félags í eigu forstjóra Brims. Froðufyrirtæki að hans sögn

Níu milljarða skuldir en engar skuldir niðurfelldar?

„Þetta var keypt froða og lánuð froða og svo bara hvarf froðan,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, í kjölfar þess að engar eignir fundust upp í níu milljarða króna kröfur í félag hans Hafnarhól. Fullyrðir Guðmundur að engar skuldir hafi þarna verið afskrifaðar þar sem „þetta var aldrei neitt.“

Segir Morgunblaðið frá gjaldþrota félagi Guðmundar sem hafði þá starfsemi eingöngu að kaupa bankabréf sem fjármögnuð voru í bankanum og geymd í bankanum eins og eigandinn kemst að orði.

Engar eignir voru í þrotabúinu þegar upp var staðið en Guðmundur vandar ekki fjölmiðlum kveðjurnar hvað slíkt varði. Ekki væri um niðurfellingu skulda að ræða og gefur hann þá skýringu eina að „þetta var aldrei neitt.“

Engu að síður sátu eftir skuldir að upphæð níu milljarða króna þegar búið var gert upp. Vill Guðmundur ekki gefa upp um hvaða banka hafi verið að ræða í þessu tilviki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is