Viðskipti Þriðjudagur 07.12.2010 - 16:11 - Ummæli ()

Guðni Ágústsson afsakar ekkert. Bankavíxlar talin afar örugg fjárfesting

Hundruð milljóna tap vegna kaupa á bankavíxlum

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, gerir engar athugasemdir við gagnrýni Ríkisendurskoðunar á að í ráðherratíð hans hafi 214 milljónir króna verið lagðar inn á bankabréf í Kaupþingi sem tapaðist öll við hrunið. Ávöxtun hafi verið góð þegar hann fór úr embætti.

Sendi Guðni frá sér tilkynningu vegna málsins í dag en eins og Eyjan greindi frá í gær setti ráðuneyti hans 214 milljónir í bankavíxla í stað þess að skila þeim til ríkisfjárhirðis. Þetta sama ár, 2007, fór rekstur landbúnaðarráðuneytisins 37 prósent fram úr fjárlögum.

Ég lauk störfum sem Landbúnaðarráðherra í maí 2007 þá var þessi sjóður í góðri ávöxtun og enginn, ekki Ríkisendurskoðun né Fjármálaráðuneytið höfðu gert athugasemdir við ávöxtun þessara peninga sem urðu grundvöllur þess að 28 reiðhallir íþróttahús hestamanna eru nú risin eða að rísa um allt land.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is