Viðskipti Þriðjudagur 07.12.2010 - 16:23 - Ummæli ()

Jón Daníelsson: Hvetur stjórnvöld til áhættusækni. Engu að tapa en allt að vinna

Sækja fram og bæta í að mati Jóns

Það sem helst skortir nú er meiri áhættusækni af hálfu stjórnvalda því nú sé engu að tapa en allt að vinna að mati Jóns Daníelssonar dósents við Hagfræðiskóla Lundúna.

Segir Jón í viðtali við Viðskiptablaðið að nú sé leikur á borði fyrir stjórnvöld og það sé að auka áhættu og hvetja beinlínis til hennar. Sagan sýni að of mikið dragi úr áhættusækni í kjölfar kreppa á borð við þá íslensku en það sé einmitt tíminn til aðgerða enda sé botninum þegar náð.

Stjórnvöld eiga að hvetja bæði fyrirtæki og banka til að taka miklu meiri áhættu. Stjórnvöld geta haft áhrif í gegnum skattkerfið, regluverkið og vextina. Þau hafa því mörg tækifæri til að hafa áhrif. En þeirra nálgun í dag virðist vera sú að koma í veg fyrir hrunið þrátt fyrir að það hafi orðið. Það er verið að byrgja brunninn eftir að barnið er fallið ofan í hann. Það er því enn verið að koma í veg fyrir áhættu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is