Þriðjudagur 07.12.2010 - 16:00 - Ummæli ()

WOODY ALLEN: Langar að mæta í brúðkaup Vilhjálms Bretaprins

Alla langar að vera boðið í hjónavígslu ársins sem fer fram á næsta ári þegar Vilhjálmur Bretaprins gengur að eiga unnustu sína Kate.

Frændi Vilhjálms, Andrew prins, var til að mynda umsetinn í matarboði sem haldið var í boði milljarðamæringsins Jeffrey Epstein en sá hefur verið vinur Andrews um áraraðir.

Þar voru meðal annars Woody Allen, Chelsea Handler og fleiri á svæðinu og sýndi mannskapurinn hjónavígslunni mikinn áhuga.

„Allir sem sátu við borðið báðu hann um að redda sér í brúðkaupsveisluna og þeirra á meðal var Woody Allen,“ sagði heimildarmaður í samtali við New York Post. „Hann brosti bara og svaraði ekki. Svo var hann jafnframt spurður hvort hans fyrrverandi, Sarah Ferguson, myndi mæta en hann bandaði því frá sér og sagðist ekki hafa hugmynd þar sem hann hefði átt annríkt að undanförnu.“

Andrew gerði líka grín að sjálfum sér og líkti sér við Harry prins.

„Ég er eins og hann. Verð alltaf bara litli bróðirinn.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is