Icesave samningurinn fær enga flýtimeðferð á þinginu

Icesave samningurinn fær enga flýtimeðferð
Þrátt fyrir að velflestir þingmenn hafi lýst nokkurri ánægju með nýjan Icesave samning í gær ætla þingmenn sér að engu óðslega þegar samningurinn fer fyrir þingið. Ekki liggi sérstaklega á en mikilvægt sé að hvert einasta atriði sé skoðað og metið. Icesave fái þannig enga flýtimeðferð.
Fjallar Morgunblaðið um þetta í dag og gefur sér að bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra vilji bæði nýjan samning í gegn svo fljótt sem auðið er.
Þá segir blaðið auðheyrt á þingmönnum stjórnarandstöðu og reyndar stöku stjórnarþingmönnum líka að um mikinn áfellisdóm sé að ræða yfir ríkisstjórnina enda sé himinn og haf milli þessa samnings og Svavarssamningsins sem sömu stjórnvöld vildu líka keyra í gegn á sem skemmstum tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is