Tvær moskur í Reykja- vík? Múslimar vilja ekki sameinast um eina

Ekki pláss fyrir tvær moskur í Reykjavík
Tvö mismunandi samtök múslima hér á landi kæra sig ekki um að deila sameiginlega einni mosku en samtals telja bæði samtök tæplega 600 meðlimi. Borgaryfirvöld eiga þó fáar lóðir hentugur undir bænahús og leita leiða til að veita báðum samtökunum saman lóð.
Við þetta er Salmann Tamimi, forstöðumaður Félags múslima ósáttur og bendir á að félagið hafi beðið lóðar um tólf ára skeið meðan félagið Menningarsetur múslima hefur aðeins nýlega sótt um slíkt.
Segir Salmann við Vísi að sameiginleg moska komi ekki til greina því það væri svipað og biðja þjóðkirkjuna að deila húsnæði með Vottum Jehóva. Aftur á móti eru forsvarsmenn Menningarseturs múslima ekki á móti hugmyndinni
Borgaryfirvöld segjast ekki geta veitt öllum samtökum sem telja nokkur hundruð manns lóðir í borginni og því hafi verið hugmynd að samnýta nýja lóð. Segir Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkur, eðlilegt að menn segi á einhverjum tímapunkti að nú geti þeir ekki lengur, án greiðslu, fengið úthlutað svona takmörkuðum gæðum. „En ég geri mér alveg grein fyrir því að ef það er úthlutað lóð til annars félagsins er ekki hægt að ganga framhjá hinu félaginu heldur.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is