Viðskipti Mánudagur 13.12.2010 - 07:20 - Ummæli ()

Ákvörðun tveggja ráðherra að fella niður skuldir ólögleg

Að mati meirihluta menntamálalanefndar og fjárlaganefndar Alþingis var ákvörðun þáverandi menntamálaráðherra og fjármálaráðherra árið 2007, um að fella niður 126 milljóna króna skuld, ólögleg.

Stöð tvö greinir frá þessu.

Ráðherrarnir sem um ræðir voru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um málefni skólans kemur fram að skólinn hafi fengið ofgreiddar 192 milljónir frá ríkinu. Ólafur  Haukur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, segir að sú upphæð sé ekki rétt heldur hafi um verið að ræða 126 milljónir.

Á heimasíðu skólans segir Ólafur Haukur í athugasemd vegna fréttaflutnings að „formaður og varformaður menntamálanefndar hafa látið frá sér fara að mat nefndarinnar sé að ekki skuli samið um áframhaldandi starf skólans við núverandi eigendur. Úttekt nefndarinnar um starf skólans liggur þó ekki fyrir.“ Rétt sé að minna á að endanleg ákvörðun um fjárstuðning við skólann liggi hjá Alþingi og ráðherra, segir í tilkynningunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is