Einkaneysla að aukast – heimilin að mjaka sér upp úr kreppunni
Svo virðist sem einkaneysla sé heldur að rétta úr kútnum það sem af er liðið vetri, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans. Þó er hún enn minni en var fyrir hrun, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
Samkvæmt tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun sem birtar voru á föstudaginn nam kreditkortavelta í nóvember 25,5 milljörðum. og var það 7,5% meiri velta í krónum talið en í sama mánuði í fyrra. Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 10,3% milli ára. Má þakka það fyrst og fremst 41,9% raunaukningu í erlendri kortaveltu á milli ára, en innlend kreditkortavelta jókst um 4,6% á sama tíma.
Svipuð þróun varð á debetkortaveltu, en debetkortavelta í innlendum verslunum nam 19,3 milljörðum í nóvember og jókst að raungildi um 3,1% frá sama mánuði í fyrra. Má bæta við þetta að velta í dagvöruverslun jókst um 3,3% að raungildi á þessum tíma samkvæmt tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar birti á föstudaginn. Þær tölur segja því sömu sögu.
Samanlagt gefur raunbreyting kreditkortaveltu og debetkortaveltu í innlendum verslunum góða mynd af þróun einkaneyslu hérlendis. Á þann kvarða jókst kortavelta um 7,1% að raungildi í nóvember frá sama mánuði í fyrra. Er það fjórði mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti.
Þetta er vísbending um að heimilin séu heldur að auka við sig neyslu eftir samdrátt undanfarin tvö ár. Einkaneyslan jókst um 1,8% á þriðja ársfjórðungi í fyrsta sinn frá því á fyrsta ársfjórðungi 2008. Fyrstu vísbendingar um einkaneysluna á fjórða ársfjórðungi eru þannig að vöxturinn verði jafnvel meiri en á þeim þriðja.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
