Viðskipti Mánudagur 13.12.2010 - 10:36 - Ummæli ()

Julian Assange gestur í boði sendiráðs USA á Íslandi

Julian Assange var gestur bandaríska sendiráðsins á Íslandi fyrir ári.

Stofnandi Wikileaks, Julian Assange, var gestur í boði í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi í desember á síðasta ári. Þetta kemur fram í frétt Daily Telegraph. Assange fór sem gestur Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Hreyfingarinnar, en hún starfaði með Wikileaks á þeim tíma.

Assange naut þar veitinga og skemmti sér vel, að sögn Birgittu. Hann eyddi töluverðum tíma í að spjalla við Sam Watson, starfsmann sendiráðsins, og höfund margra þeirra pósta sem lekið hafa út frá bandaríska sendiráðinu hér. Assange hafði þá þegar komist yfir mikið af þeim tölvupóstum frá bandarískum sendiráðum sem hafa lekið út undanfarið.

Þá hafði hann einnig þegar birt skjöl sem höfðu verið þyrnir í augum Bandaríkjastjórnar, líkt og skjöl um fanga í Guantanimo, og tölvupósta Söruh Palin – sem nú hefur hvatt til að allra leiða verði leitað til að stöðva Assange.

Þó Julian Assange sé í hópi helstu óvina bandaríska ríkisins, þá virðast þeir vart hafa haft hugmynd um hver hann var fyrir ári síðan.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is