Miðvikudagur 15.12.2010 - 18:20 - Ummæli ()

Grátur og gnístran tanna. Aldrei lengri raðir í matarúthlutanir

Mannskemmandi bið eftir mat á götum Reykjavíkur

Aldrei áður hefur röðin í matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp Íslands verið jafn löng og í dag og urðu allmargir frá að hverfa vegna þess hve löng röðin var. Þá heltust enn aðrir úr lestinni vegna kulda.

Segir einstaklingur sem beið í röðinni í dag hafa gefist upp þar sem útséð var um að fá úthlutað sökum annríkis. Segir viðkomandi frá því við fréttastofu RÚV að fólk hafi staðið grátandi í röðinni bæði vegna biðarinnar og kuldans en ekki síður vegna þeirrar smánar sem það þykir að biðja matar á þennan hátt.

Var allt að sjö stiga frosti í Reykjavík í dag og hvasst að auki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is