Samkomulag um úrlausn skuldavanda smærri og meðalstórra fyrirtækja

Leysa á úr skuldavanda smærri fyrirtækja með hraði
Tekist hefur samkomulag um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja í landinu en skrifað var undir samkomulag ráðuneyta, banka og fjölda hagsmunasamtaka í dag. Kjarni samkomulagsins er að allri úrvinnslu verði hraðað allverulega.
Sendir efnahags- og viðskiptaráðuneytið frá sér staðfestingu á samkomulaginu fyrir stundu en til stendur að kynna það formlega á föstudaginn kemur.
Segir þar að samkomulag þetta sé ein af nauðsynlegum forsendum nýrrar fjárfestingar í íslensku hagkerfi sem aftur leiðir af sér hagvöxt og störf.
Samkomulagið felur í sér að úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði hraðað verulega. Stefnt er að því að fyrir 1. júní 2011 hafi fjármálafyrirtæki lokið skoðun á fjárhagsstöðu þessara fyrirtækja og gert lífvænlegum fyrirtækjum sem eru í fjárhagsvanda tilboð um úrvinnslu skulda þeirra.
Miðað er við að heildarskuldsetning fyrirtækis að lokinni úrvinnslu fari ekki fram úr endurmetnu eigna- eða rekstrarvirði þess, hvoru sem er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga og ábyrgða fyrir skuldum viðkomandi fyrirtækis.
Samkomulaginu verður fylgt eftir með mánaðarlegum skýrslum um framgang mála og úrbótum á úrvinnslunni, komi til hnökra eða tafa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is