Miðvikudagur 15.12.2010 - 18:06 - Ummæli ()

Starfsemi Sólheima tryggð þótt núverandi stjórn fari frá

Vistmenn að Sólheimum þurfa ekkert að óttast

Starfsemi að Sólheimum verður tryggð hvort sem núverandi stjórnarmenn draga sig úr rekstrinum eður ei samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu félags- og tryggingaráðuneytisins og sveitarfélagsins Árborgar.

Fyrr í dag tilkynnti stjórn vistheimilisins Sólheima að hún treysti sér ekki til áframhaldandi reksturs með þeim framlögum sem fyrirhugað er að veita til starfseminnar.

Yfirlýsingin í heild:

Þrátt fyrir að forsvarsmenn Sólheima dragi sig úr rekstrinum mun samkomulag um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna tryggja óbreytt rekstrarfé til Sólheima líkt og annarra sjálfeignarstofnana á næsta ári. Íbúum verður tryggð áframhaldandi þjónusta.

Þá er það harmað að fulltrúaráð Sólheima skuli vilja segja upp þjónustu við fatlaða íbúa Sólheima, ráðningarsamningum, leigusamningum og öðrum skuldbindingum.

„Jafnframt vekur það undrun að forsvarsmenn Sólheima kjósi að draga sig út úr rekstrinum og vísa til þess að fjárveitingar næsta árs muni ekki duga í ljósi þess að framlögin verða í fullu samræmi við framlög síðasta árs,“ segir í yfirlýsingunni.

„Fari svo að stjórn Sólheima nýti sér heimild fulltrúaráðsins og segi upp samningum mun félags- og tryggingamálaráðuneytið í samvinnu við Árborg og þjónustusvæði fatlaðra á Suðurlandi tryggja að íbúar Sólheima eigi þar áfram búsetu og njóti þjónustu líkt og verið hefur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is