Fjármálaráðherra mælir fyrir nýjum Icesave samningi á Alþingi

Alþingi fer nú yfir nýja Icesave samninginn
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælti nú fyrir stundu fyrir nýju Icesave frumvarpi á Alþingi. Hvatti ráðherrann þingmenn til að sameinast nú um nýja samninginn og koma málinu frá.
Um er að ræða samning þann sem kynntur var í síðustu viku og er 200 milljarða króna betri samningur fyrir Ísland en sá fyrri sem forseti Íslands neitaði staðfestingar í byrjun árs.
Var sú staðreynd tilefni gagnrýni Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í dag en samkvæmt vef RÚV sagði hann ekki hægt að bjóða upp á nýjan samning án þess að fara yfir þann samning sem Steingrímur og stjórnvöld vildu keyra í gegn á sínum tíma. Sagði Bjarni það vera niðurlægjandi fyrir ríkisstjórnina að koma með nýjan samning inn á þingið.
nú fyrir stundu. Hann sagði óskandi að þingmenn næðu nú saman um þennan nýja samning sem sameiginleg samninganefnd stjórnar og stjórnarandstöðu undir forystu Lee Buchheit kom heim með.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ekki væri hægt að fara inn í þessa umræðu án þess að rifja upp þann samning sem ríkisstjórnin ætlaði að troða upp á þjóðina, það væri beinlínis niðurlægjandi fyrir stjórnarforystuna að koma með nýjan samning nú inn á þing.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is