Ögmundur ósammála Steingrími. Treystir þremenningunum sem sátu hjá

Ögmundur ósammála formanni sínum
Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, segist treysta vel þeim Atla Gíslasyni, Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Einari Daðasyni en þau þrjú sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins á þinginu í gær.
Lét formaður flokks Vinstri grænna, Steingrímur J. Sigfússon, að því liggja að eftir það væri þeim varla sætt í flokknum lengur.
Undir þetta tekur Ögmundur ekki og varaði við því í fyrirspurnartíma á þinginu í dag að fara með málið í persónulegar skotgrafir.
Vildi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vita hvort Ögmundur deildi þeim skoðunum með formanni sínum. Svaraði Ögmundur því til að hann treysti þeim vel til að berjast fyrir hugsjónum sínum og stefnumarkmiðum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is