Tveggja ára fyrningar- frestur eftir gjaldþrot orðinn að lögum

Ný gjaldþrotalög orðin að veruleika
Samþykkt hafa verið á Alþingi lög þess efnis að eftirleiðis muni fyrningarfrestur í kjölfar gjaldþrots vera aðeins tvö ár á þeim kröfum sem ekki fást greiddar við þrot einstaklings. Að samþykktinni stóðu allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur sem allur sat hjá við afgreiðslu málsins.
Hefur mikið verið kallað eftir slíkri aðgerð í kjölfar bankahrunsins enda ljóst að margir komast ekki hjá gjaldþroti í kjölfar hrunsins. Hingað til hefur þótt eðlilegt að hafa engan slíkan frest sem þýðir í raun að fjárkröfur hafa legið á skuldugum einstaklingum alla ævi ef því er að skipta.
Nú fyrnast allar kröfur að tveimur árum liðnum sem gefur skuldsettum einstaklingum tækifæri að hefja nýtt líf að þeim tíma liðnum.
Mbl.is segir frá því að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi metið frumvarpið sem slíkt gott og gilt en frumvarpið gagnaðist hins vegar ekki venjulegu skuldugu fólki, sem hefði lent í árangurslausu fjárnámi, heldur frekar þeim er framarlega hafi verið í útrásinni á síðustu árum. Þeir muni ganga skuldlausir frá borði eftir tvö ár.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is