Kraumslistinn tilbúinn – 20 innlendar plötur sem skara fram úr
Kraumslistinn, úrvalslisti þeirra platna sem dómnefnd þykjir koma til greina fyrir hin árlegu plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, hefur verið kynntur.
Þær plötur sem útvaldar hafa verið og þykja framúrskarandi og spennandi á árinu eru:
- Agent Fresco – A Long Time Listening
- Amiina – Puzzle
- Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
- Daníel Bjarnason – Processions
- Ég – Lúxus upplifun
- Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
- Kammerkór Suðurlands – Iepo Oneipo
- Miri – Okkar
- Momentum – Fixation, At Rest
- Moses Hightower – Búum til börn
- Nolo – No-Lo-Fi
- Ólöf Arnalds – Innundir skinni
- Prinspóló – Jukk
- Retro Stefson – Kimbabwe
- Samúel Jón Samúelsson Big Band – Helvítis Fokking Funk
- Seabear – We Built a Fire
- Sóley – Theater Island
- Stafrænn Hákon – Sanitas
- Valdimar – Valdimar
- Quadruplos – Quadroplos
Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að nú þegar dómnefnd hefur valið úrvalslistann (20 plötur) heldur hún áfram við að velja sjálfann Kraumslistann 2010, 5 plötur sem verðlaunaðar verða sérstaklega. Síðustu tvö ár, 2008 og 2009, urðu verðlaunaplöturnar reyndar 6 talsins – en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til. Samtals 12 hljómplötur – frá flytjendum á borð við Hjaltalín, Huga Guðmundsson, Ísafold kammersveit, Agent Fresco og FM Belfast – hafa komist á lokalista Kraumslistans árin 2008 og 2009.
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.
Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum (100 stk hver plata árin 2008 og 2009) og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
