Herflutningar: Heimsóknum Danadrottningar gæti snarfækkað

Margrét Þórhildur á sjötíu ára afmælisdegi sínum í apríl
Heimsóknum Margrétar Þórhildar Danadrottningar myndi snarfækka ef ríkið verður við áskorun Reykjavíkurborgar um að banna hernaðarlegt flug um Reykjavíkurflugvöll.
Fréttablaðið segir frá þessu á forsíðu sinni í dag.
Á seinustu tveimur árum hafa 65 flugvélar lent á Reykjavíkurflugvelli sem skilgreindar hafa verið sem herflugvélar. Engin af þeim tengdist beinum hernaðarumsvifum á neinn hátt. Þær voru allar litlar farþega- og vöruflutningaflugvélar í millilandaflugi og björgunarþyrlur danska hersins í æfingaflugi ásamt könnunar- og farþegaflugvél danska flughersins á leið milli Danmerkur og Grænlands.
Hjördísa Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Isavia, segir í samtalið við Fréttablaðið að „flugvélar sem fljúga undir merkjum danska flughersins eða flotans flokkast eins og gefur að skilja undir herflug“
Nákvæmum upplýsingum um tilgang þeirra 65 lendinga sem teljast til herflugs var komið til borgaryfirvalda og greinargerð Isavia var lögð fram í borgarráði. Tillaga Jóns Gnarr borgarstjóra var engu að síður samþykkt.
Urður Gunnarsdóttur, uppýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir óvíst hvernig ráðuneytið muni bregðast við áskorun Reykjavíkurborgar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is