Viðskipti Þriðjudagur 21.12.2010 - 09:29 - Ummæli ()

Íslendingum fjölgar um 0,2% – fólksfækkun á Vestfjörðum 3,2%

Hagstofan hefur birt tölur um íbúafjölda í einstökum sveitarfélögum hinn 1. desember 2010. Þá voru íbúar með lögheimili á Íslandi 318.236. Ári áður var íbúafjöldinn 317.593 og fjölgaði því milli ára um 643 íbúa eða 0,2%. Körlum fækkaði á þessum tíma, en konum fjölgaði um hálft prósent.

Frá 1. desember 2009 til 1. desember 2010 fjölgaði íbúum á höfuðborgarsvæðinu (0,7%) og á Norðurlandi eystra (0,3%). Á öðrum landsvæðum fækkaði íbúum, mest á Vestfjörðum (-3,2%), Suðurnesjum (-1,4%) og á Austurlandi (-1,2%). Í öðrum landshlutum var fækkunin óveruleg.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is