Kærur til Hæstaréttar vegna stjórnlaga-þingskosningar
Eins og áður hefur verið fjallað um á Eyjunni, hafa Hæstarétti borist þrjár kærur vegna kosninga til stjórnlagaþings.
Fréttablaðið fjallar um þær í dag.
Samkvæmt blaðinu kærir íbúi í Neskaupstað og krefst ógildingar af eftirfarandi ástæðum:
1. Kjörseðlar hafi verið númeraðir og auk þess með strikamerki. „Ofangreindur ágalli er brot gegn skráðum og óskráðum meginreglum um að kosningar skulu vera leynilegar,“ segir í kærunni.
2. Að ekki hafi verið notaðir hefðbundnir kjörklefar heldur pappaskilrúm. „Útilokað er annað en að kjósendur geti hafa kíkt á kjörseðil næsta kjósanda, t.d. þegar þeir standa upp við hliðina á öðrum sem eru að fylla út seðil, eða ganga fyrir aftan hann og horfa yfir öxl hans.“
3. Ekki hafi verið hægt að skipta um kjördeild eins og venja er í kosningum.
4. Pappakassar hafi verið notaðir í stað hefðbundinna kjörkassa. Kjörkassar skuli vera læsanlegir og þannig frágengnir að ekki sé hægt að ná seðli upp úr þeim án þess að opna þá. Svo hafi ekki verið í þessum kosningum.
5. Ekki hafi mátt brjóta kjörseðilinn saman. Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis skuli hins vegar brjóta kjörseðla saman til að tryggja leynd kosninganna.
Einn íbúi í Borgarbyggð krefst ógildingar með vísan til sömu atriða og nefnd eru í liðum eitt, tvö og fimm hér að ofan. Þá kærir hann útgáfu kjörbréfa til fjórtán þingmanna af 25, þar sem þeir hafi ekki náð tilskildum sætishlut eða lágmarksfjölda atkvæða. Þeir geti því ekki talist réttkjörnir þingmenn.
Loks kærir frambjóðandi úr Reykjavík með þeim rökum að frambjóðendum hefði átt að vera leyft að hafa fulltrúa sinn viðstaddan talningu atkvæða eins og tíðkist í öllum kosningum. Svo hafi ekki verið og í því ljósi þurfi að handtelja atkvæðin, en eins og kunnugt er voru þau véllesin.
Hæstiréttur hefur tilkynnt bæði Ástráði Haraldssyni, formanni landskjörstjórnar, og Ögmundi Jónassyni dómsmálaráðherra um kærurnar og óskað eftir rökstuddri greinargerð frá þeim um kæruatriðin. Svörin eiga að berast Hæstarétti fyrir klukkan fjögur í dag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is