Miðvikudagur 22.12.2010 - 19:00
- Ummæli
()
KÓNGAFÓLKIÐ: Brúðkaupsleikfang á markað á næsta ári
Breska leikfangaverslunin Early Learning Center hefur látið framleiða sérstakt prinsabrúðkaupsleikfang fyrir sig en það er væntanlegt í verslanir í febrúar.
Leikfangið minnir á Lego eða Playmobil leikföng en þar má sjá Vilhjálm prins og tilvonandi eiginkonu hans Kate Middleton, á hestvagni, ásamt lífvörðum, ömmu prinsins og pabba sem enn er víst prins sjálfur.
Leikfangið kostar um 2600 krónur og er hannað fyrir börn, 18 mánaða og eldri.
Í fréttatilkynningu frá framleiðanda er sagt að börnin eigi eftir að „dunda sér klukkustundnum saman við brúðkaups senur“.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
