Bóksala fyrir fimm milljarða: Hnakka-bækur seljast vel
Að sögn Kristjáns B. Jónassonar, formanns Félags bókaútgefanda, er gert ráð fyrir að velta í bóksölu verði um 5 milljarðar króna.
Fréttablaðið fjallar um málið í dag.
„Við sjáum engin merki þess að bókasala sé að minnka,“ segir Kristján.
Aldrei hafa verið gefin út jafn mörg íslensk skáldverk og í ár. Tvær og hálf milljón bóka eru keyptar hér á landi ár hvert, sem jafngildir um átta bókum á hvern Íslending.
Kristján segir metsölubækur hafa selst í mjög stórum upplögum fyrir jólin. „Menn þurfa að hafa farið vel yfir fimm þúsund eintök til að komast inn á topp tíu. Þessar efstu bækur hafa allar farið yfir tíu þúsund eintök. Arnaldur, að mér skilst á Forlaginu, hefur aldrei selst jafn vel og Yrsa ekki heldur.“ Bók Arnaldar Indriðasonar hefur selst í tæplega þrjátíu þúsund eintökum og Yrsu Sigurðardóttur í sextán þúsund eintökum. Bækurnar sem koma á eftir söluhæstu bókunum seljast í sjö til níu þúsund eintökum.
Að sögn Kristjáns eru alltaf sveiflur í smekk fólks á bókum. „Í fyrra voru mikið áberandi sjálfshjálparbækur, þær eru ekki í tísku í ár en í staðinn koma kannski matreiðslubækur. Við sjáum þrjá, fjóra titla ganga mjög vel og það ber mikið á þeim. Þessar hnakkabækur, eins og Gillz og Tobba, eiga líka upp á pallborðið núna,“ segir hann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is