MYNDBAND: Kertasníkir setur í skóinn á Selfossi
Jólasveinninn Kertasníkir var festur á myndband þar sem hann laumaði gjöfum í skó í gegnum glugga á suðurlandi.
Það var sjónvarpsmðaurinn geðþekki Magnús Hlynur, sem stóð sig heldur betur á fréttavaktinni á aðfangadag þegar hann náði fágætri myndbandsupptöku af jólasveininum Kertasníki við iðju sína þar sem hann var að lauma ýmsu smálegu í skó barnanna.
Ekki vitað til að margar upptökur hafi náðst af jólasveinum við þessar aðstæður, enda eru jólasveinar jafnan sérstaklega varir um sig.
Að sögn lögreglu hefur þeim einungis borist ein tilkynning um grunsamlegar mannaferðir þar sem jólasveinar hafa komið við sögu fyrir þessi jól. Það hlýtur að teljast mjög góður árangur í ljósi þess að þréttán jólasveinar hafa laumast um og fært þúsundum barna í skóinn fyrir þessi jól.
Hægt er að horfa á myndbandið á Facebook síðu Magnúsar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
