Viðskipti Mánudagur 27.12.2010 - 14:59 - Ummæli ()

Jólaverslunin góð. Ágæt sala í verslunum sem selja dýrustu merkin

Nóg var af fólkinu í verslunarmiðstöðvunum um jólin

Ef frá er talin lítilsháttar samdráttur í sölu um jólin 2008 hefur ekkert alvarlegt bakslag komið í jólasölu þeirra nítján verslana sem kaupmaðurinn Svava Johansen rekur á höfuðborgarsvæðinu.

Tekur hún undir með öðrum kaupmönnum að jólin hafi verið þeim góð og salan ekki valdið vonbrigðum.

Segir Svava þó ljóst að Íslendingar hagi kaupum sínum með öðrum hætti nú en áður og reyndin sé að almennt sæki fólk meira í verslanir sem bjóða lægra vöruverð. Hún segir þó að nóg sé af Íslendingum sem hafi það ágætt og leyfi sér hluti áfram og að sala í þeim verslunum sem dýrustu merkin selja hafi verið góð þessi jólin.

Morgunblaðið greinir frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is