Fasteignamarkaður að taka við sér: Kaupsamningum fjölgað um 40%
Þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um rúm 40% á seinni hluta ársins. Á sama tíma fækkaði makaskiptasamningum en þeir voru um 36% árið 2009 en eru 24% það sem af er árinu.
Morgunblaðið fjallar um fasteignamarkaðinn í dag.
Sömuleiðis hefur leigusamningum fjölgað verulega og eru þeir nú tvöfalt fleiri en fyrir 5 árum.
Velta fasteignaviðskipta er enn töluvert minni en þegar góðærið stóð sem hæst en hefur engu að síður aukist um 16% á milli ára, úr 99 milljörðum árið 2009 í tæpa 115 milljarða 2010. Á höfuðborgarsvæðinu stefnir í að kaupsamningar verði rúmlega 2.900 og heildarupphæð þeirra rúmir 83 milljarðar króna, en í fyrra voru þeir 2.100 og upphæð þeirra 72 milljarðar.
Jón Guðmundsson, fasteignasali hjá Fasteignamarkaðnum, segir í samtali við Morgunblaðið sjá fá teikn á lofti um að verð sé að hækka.
Það er mikið atvinnuleysi og kaupmáttur er að rýrna. Skattar eru einnig að hækka. Það eina sem getur hjálpað fasteignamarkaðinum er að vextir eru mjög neikvæðir. Það getur vel verið að fólk muni sjá sér hag í því að kaupa fasteignir í stað þess að láta peningana liggja inni í banka vaxtalausa. Það eitt og sér getur leitt til þess að eftirspurn eftir fasteignum verði meiri á komandi ári
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is