Miðvikudagur 05.01.2011 - 13:33 - Ummæli ()

Atli Gíslason: Ofríki framkvæmdavaldsins? Alþingi engan lærdóm dregið

Atli sendir gagnrýnismönnum tóninn í nýjum pistli

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og einn þremenninganna sem úthrópaðir hafa verið fyrir að styðja ekki fjárlagafrumvarp stjórnvalda, spyr hvort Alþingi hafi dregið einhvern lærdóm af áfellisdómi Rannsóknarnefndar Alþingis og vísar þar til árása á þremenningana fyrir að hafa aðra skoðun á málum.

Skrifar Atli pistil um málið í Morgunblaðinu og segir sér til efs að þingmenn hafi dregið þann lærdóm af Rannsóknarskýrslunni og ófögrum orðum þar um stjórnmálamenn sem þeir sjálfir hafi heitið að draga.

„Meginniðurstöður vinnuhópsins um stjórnmálamenningu hér á landi er að hún sé vanþroskuð og einkennist af miklu valdi ráðherra og oddvita stjórnarflokkanna. Þingið ræki illa umræðuhlutverk sitt. Megináherslan sé lögð á kappræðu á þingi þar sem þekking og rökræður víkja fyrir hernaðarlist og valdaklækjum. Þingið sé líka illa í stakk búið til að rækja eftirlitshlutverk sitt, m.a. vegna ofríkis meirihlutans og framkvæmdavaldsins, sem og skorts á faglegu baklandi fyrir þingið. Þá sé skortur á fagmennsku og vantrú á fræðilegum röksemdum mein í íslenskum stjórnmálum.

Þá bendir Atli á að Alþingi hafi ályktað „að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur.“

Höfum við gert það? Mér er það til efs. Ég hef um langa hríð innan flokks míns og þingflokks leitast við að koma fram sjónarmiðum gegn ESB umsókninni, gegn einkavæðingu auðlinda, fyrir breyttri efnahagsstefnu o.fl. en sjónarmiðin hafa að mestu fallið í grýttan jarðveg flokksforystunnar. Síðast lagði ég ásamt flokkssystkinum mínum, Ásmundi Einari Daðasyni og Lilju Mósesdóttur, fram ítarlegar hugmyndir og tillögur um breytingu á fjárlögum. Rauði þráðurinn var að verja grunnstoðirnar og koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi og brottflutning af landinu. Ég batt vonir við að fá málefnalega umræðu. Þær rættust ekki. Varaformaður fjárlaganefndar taldi þær lítilsvirðingu við störf nefndarinnar og starfandi þingflokksformaður VG kvað upp úr með það í greinargerð að skoðanir okkar væru ódrengilegar.

Forystumenn Samfylkingarinnar hafa ekki látið sitt eftir liggja, kallað okkur ketti, Lilju Mósesdóttur hryssu og okkur Ásmund folöld hennar og þar fram eftir götunum. Ágreiningurinn hefur verið persónugerður og við gerð tortryggileg. Hvað skyldi koma næst úr dýraríki þessarar umræðu? Eigum við að tala um nöðrur, amöbur og kamelljón? Ég tek ekki þátt í því.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is