Viðskipti Fimmtudagur 06.01.2011 - 12:59 - Ummæli ()

Landsbankinn íhugar aðgerðir vegna viðskiptafléttu Ölgerðarinnar

Ölgerðin hefur nú helstu umboð Dreifingar sem fór í gjaldþrot

Landsbanki Íslands skoðar nú hvort grípa eigi til sérstakra ráðstafana vegna samnings þess sem forsvarsmenn Ölgerðarinnar gerðu við fyrrum eiganda heildverslunarinnar Dreifingar en sá tók með sér helstu umboð og samninga úr þrotabúinu og sá sinnir nú viðskiptum fyrir Ölgerðina.

Óánægja Landsbankamanna stafar af því að bankinn er stærsti kröfuhafi Dreifingar sem er nú skel ein eftir að fyrrum eigandi Haukur Hjaltason, tók helstu umboð og samninga og færði sig yfir til Ölgerðarinnar sem ráðgjafi eins og það er orðað.

Blaðafulltrúi Landsbankans segir við DV að bankinn sé að skoða aðgerðir vegna þessa gjörninga Hauks.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is