Viðskipti Fimmtudagur 06.01.2011 - 20:33 - Ummæli ()

Sameinuðu þjóðirnar: Himnarnir ekki að hrynja

Nick Nuttall, talsmaður umhverfisverndarstofnunnar Sameinuðu þjóðanna segir að vísindamenn stofnunnarinnar óttist ekki að heimsendir sé í nánd. Í samtali við fréttavef Reuters, segir Nuttall að þótt fuglar hrapi dauðir af himnum ofan og fiskur deyji í vötnum, þá sé það ekki vísbending um að heimsendir sé í nánd.

Nuttall telur slíkt geta átt sér margvíslegar skýringar, þótt það sé vissulega sjaldgæft að sjá mörg slík tilfelli á skömmum tíma. „Vísindin eiga erfitt með að útskýra þessa hluti. Þetta eru dæmi um að náttúran er óútreiknanleg,“ segir Nuttall.

Ekki er vitað til að Sameinuðu þjóðirnar hafi áður séð ástæðu til að árétta um að heimsendir sé ekki í nánd.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is