Cathy Ward (49): Fyrsta húðflúrið, Twilight stjörnurnar yfir ALLT bakið
Hún ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, Cathy Ward, 49 ára bakarísstarfsmaður í Bretlandi segist svo heilluð af Twilight að hún lét gera altari aðalpersónunum til heiðurs á bakinu á sér.
„Ætli það verði ekki bara trúboðastellingin og hún ofan á það sem eftir er,“ sagði eiginmaður hennar til átján ára af þessu tilefni.
Cathy segist þakka bókunum að hún missti fjöldann allann af kílóum á síðasta hálfa árinu og af þakklæti ákvað hún að fá sér þetta húðflúr. Hún lækkaði um 14 fatastærðir.
Frúin er þó ekki hætt því hún áætlar að fá sér mynd af persónunni Edward á kviðinn. Í viðtali við breska blaðið Daily Mail segist hún elska Robert Pattinson.
„Mig langar að ná mér í gott form svo ég geti látið flúra karakterinn Edward Cullenn á kviðinn. Eins og ég sé þetta þá er ég ekki að eyða peningum í drykkju og át en í staðinn er ég að elta það sem ég raunverulega elska. Ég á cross-trainer, róðravél og handlóð og ég þjálfa mig í auka herberginu okkar þar sem ég hef hengt Twilight myndir upp um allt. Svo horfi ég á myndirnar eða hlusta á tónlistina úr þeim meðan ég þjálfa mig. Þetta hefur gert kraftaverk fyrir mig. Ég hef aldrei verið jákvæðari eða meira til í að hitta fólk. Aldrei verið í betra formi eða skemmt mér eins vel.“
Þetta verður ekki af henni tekið, og að sama skapi verður það ekki af henni tekið að hún er með sérstaka ‘portrait’ mynd af rauðhærðum ketti fyrir ofan spegilinn sinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
