Föstudagur 07.01.2011 - 12:47 - Ummæli ()

Landinn með meiri áhyggjur af vegtollum en auðlindunum

Skipta vegtollar meira máli en þjóðarauðlindirnar?

Íslendingar hafa mun meiri áhyggjur af auknum sköttum á bíleigendur gegnum vegatolla sem fyrirhugað er að koma á en auðlindum landsins ef marka má undirskriftalista um bæði málefnin.

Á vef Félags íslenskra bifreiðareigenda þar sem vegatolli er mótmælt hafa nú rúm 37 þúsund skráð sig en aðeins 28 þúsund skora á stjórnvöld að rifta sölunni á HS Orku til Magma og að auðlindir landsins verði allar í þjóðareigu.

Hefur þó síðarnefndi listinn verið í gangi mánuðum saman á vefnum orkuaudlindir.is en innan við vika er síðan FÍB hóf að safna undirskriftum gegn vegtollum.

Undrast Lára Hanna Einarsdóttir þennan þankagang Íslendinga í bloggi sínu á Eyjunni og sérstaklega þar sem skoðanakannanir sýna óumdeilt að mikill stuðningur er meðal landsmanna að auðlindirnar hverfi ekki úr eigu Íslendinga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is