Fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunnar lokið
Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins á fundi sínum í Washington í dag. Þar með stendur íslenskum stjórnvöldum til boða lánafyrirgreiðsla sjóðsins að fjárhæð um 19 milljarðar króna. Íslenskum stjórnvöldum stendur nú einnig til boða öll sú lánafyrirgreiðsla sem Norðurlöndin höfðu boðað í tengslum við áætlunina, en dregið verður á þau lán eftir því sem nauðsyn krefur.
Í tilkynningu á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis segir:
Í tengslum við endurskoðunina sendu stjórnvöld sjóðnum endurnýjaða viljayfirlýsingu (e. Letter of Intent). Í yfirlýsingunni kemur fram að efnahagsleg endurreisn sé í góðum farvegi, sem sjá megi á stöðugleika krónunnar, lækkandi skuldastöðu og lítilli verðbólgu. Jákvæður viðskiptajöfnuður hafi gert stjórnvöldum kleift að kaupa erlendan gjaldeyri til styrkingar gjaldeyrisforða. Nýlegir hagvísar bendi til að eftirspurn sé hægt og rólega að ná sér á strik og búist er við jákvæðum hagvexti árið 2011.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is