Sendiherra Bandaríkjanna segir upplýsingasöfnun í samræmi við lög
Bandaríski sendiherran fullvissaði fulltrúa íslenska utanríkisráðuneytisins að rannsókn á netsamskiptum Birgittu Jónsdóttur alþingismanns væri að öllu leyti í samræmi við bandarísk lög.
Fréttablaðið fjallar um málið í dag.
Ráðuneytisstjórinn Einar Gunnarsson og þjóðréttarfræðingurinn Tómas H. Heiðar fóru á fund bandaríska sendiherrans í kjölfar þess að bandarísk stjórnvöld hafa krafið samskiptasíðuna twitter.com um gögn tengd Birgittu.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að kallað hafi verið eftir frekari upllýsingum og áhyggjum lýst yfir því að sakamálarannsókn beindist að íslenskum þingmanni með þessum hætti.
Talskona sendiráðsins, Laura Gritz, sendi út yfirýsingu að fundinum loknum þar sem segir m.a.:
Við fullvissuðum íslensk yfirvöld um að rannsókn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna fari fram í samræmi við bandarísk lög og lúti öllum viðmiðunum um réttarreglur og sanngjarna málsmeðferð sem bundnar eru í stjórnarskrá Bandaríkjanna og viðeigandi alríkislögum
Tengt efni:
10.1 Bandaríski sendiherrann kallaður á fund í dag vegna Birgittu Jónsdóttur
9.1 Réttarstaða Birgittu könnuð – viðbrögð þingmanna misjöfn
8.1 Birgitta Jónsdóttir undir smásjá Bandaríkjamanna. Vilja persónuupplýsingar
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is