BSRB vill stytta vinnuvikuna niður í 36 klukkustundir
BSRB leggur m.a. áherslu á styttingu vinnuvikunnar úr 40 klukkustunudm í 36 í yfirstandandi kjaraviðræðum.
Fréttablaðið fjallar um málið í dag.
Aðildarfélög bandalagsins fara með kjarasamningsumboð hvert fyrir sig en hafa falið bandalaginu að fjalla um nokkur tiltekin mál.
Mál sem snúa bæði að ríki og sveit eru breytingar á rétti til lífeyristöku, viðurkenning á rétti starfsmanna til hlutaveikinda, að frítökuréttar verði getið á launaseðli, að samdar verði reglur um starfslok eftir langan starfsaldur og stytting vinnuvikunnar
Formaður BSRB, Elín Björg Jónsdóttir, segir það gamalt baráttumál að stytta vinnuvikuna:
Þegar við fórum síðast fram með þetta mál, fyrir einum sex árum, var viðkvæðið að hér vantaði svo mikið vinnuafl til að reka þetta samfélag okkar að við værum að flytja inn fólk. Nú er ekki vöntun á fólki til starfa heldur þvert á móti og því teljum við að það sé lag
Markmið með styttingu vinnuvikunnar er að skapa fjölskylduvænna samfélag. „Með þessu værum við að færa okkur í átt til þess sem gerist á hinum Norðurlöndunum,“ segir Elín Björg.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is